Hilmar Gunnarsson
í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ
Fyrir heimabæinn minn
Interiors with Color & Character

Based in Totronto, Canada
Hilmar Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ. Hann hefur búið í bænum alla sína tíð og tekið virkan þátt í samfélaginu – bæði í starfi og einkalífi.
Hilmar er flestum Mosfellingum kunnugur sem ritstjóri bæjarblaðsins Mosfellings, en því starfi hefur hann sinnt í um 20 ár. Þá hefur hann einnig komið að skipulagningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima og rekstri félagsheimilisins Hlégarðs.
Hann er giftur Oddnýju Þóru Logadóttur, kennara við Helgafellsskóla, og saman eiga þau þrjá syni. Fjölskyldan hefur alla tíð búið í Mosfellsbæ og tekið þátt í uppbyggingu bæjarins á hverju stigi lífsins.
Um Hilmar
Mosfellingur af lífi og sál

Fjölskyldumaður

Mosfellingur

Samfélagsmaður
Reynsla, innsýn og vilji til ábyrgðar
Hilmar í fyrsta sæti
Af hverju núna?
Áratugalöng reynsla Hilmars af því að fylgjast með bænum vaxa og þróast hefur veitt honum skýra innsýn í það sem virkar vel – og það sem má gera betur. Mosfellsbær er ört vaxandi samfélag og mikilvægt er að halda í bæjarbraginn á sama tíma og horft er til framtíðar.
Hilmar vill leggja sitt af mörkum með því að
Hlusta
Hlusta á íbúa og skilja daglegt líf þeirra
Ólíkar áherslur
Vinna þvert á ólíkar áherslur að sameiginlegum lausnum
Traustur rekstur
Tryggja skilvirka stjórnsýslu og traustan rekstur bæjarins
Sterkt samfélag fyrir alla aldurshópa
„Mitt helsta áhugamál er bæjarfélagið Mosfellsbær og því langar mig að taka næsta skref og vinna að framtíð þess – fyrir heimabæinn minn.“

Hilmar leggur áherslu á:
- Góða og trausta þjónustu við íbúa
- Skólaumhverfi þar sem börnum líður vel
- Öflugt menningar- og íþróttastarf
- Uppbyggingu og viðhald innviða
- Atvinnulíf sem fær að blómstra
Fréttaumfjallanir

